22.04.2009 09:19:40 / holtið
Í dag er vika frá því við hættum að reikja Bjössa hefur gengið betur en mér
En ég fór reyndar í aðgerð svo ég veit ekki hvort það er að marka ja allavega gengur mér vel núna og ég er svo sátt með þetta ég er ekki eins hress eftir aðgerðina en það tekur tíma mér er sagt að ég sé óþolinmóð og hver ætti svosem að trúa því
og takk fyrir öll kvittin frá ykkur.....
Í dag er ég að fara að kveðja góða vinkonu mína hana Ásgerði Jónasar
Ég á margar góðar stundir með þér elsku vinkona, ætíð gott að koma til ykkar Svenna í einn bolla og eina......
Elsku vinkona ég bið að þú verðir fljót að jafna þig á nýja staðnum þínum, vertu ætíð velkomin í mína drauma takk fyrir tíman sem okkur var ætlaður hér og yndislegar stundir, þín vinkona sigga
»
17.04.2009 09:34:53 / holtið
Ég er svo pirruð því ég hef ofnæni fyrir þessu nikotín dóti sem hjálpar yfir versta tímabilið gamli hann er bara glaður með sína plástra....
En ég ætla til Diddu minnar og fá hjá henni svona stauta ætla að prufa þá en ég er svo ótrúlega góð sammmmmtttttt er líka bundinn heima þar sem ég var í aðgerð á miðvikudag en ég ætla að fara út á eftir ég má fara í bíl og labba pínu úti þarf bara að passa mig og auðvita geri ég það
Svo verður maður að passa upp á spikið helvvvv ég má ekki fitna en auðvita veit ég að það kemur eitthvað en ég verð að passa það vel það er að mörgu að gæta í þessu.........
Ég þakka ykkur fyrir að kvitta hjá mér i gær kæru vinir
verið dugleg að kvetja okkur í þessu það er ótrúlega gott
bestu kveðjur sigga og Bjössi
svo er ein vinkona mín með okkur líka
»
16.04.2009 11:39:39 / holtið
er að hugsa um að blogga hér pínu lítið
JÚ mín og minn við erum hætt að reykja..........
Þetta er bara 2 dagurinn í dag hjá okkur ég var vön að fara út í hurð og mella mig og ég er búin að fara 10 ferðir út að hurð tómur vani
Eg verð að segja að það er dj friðleisi komið í mig...........ég er með plástur en var ekki að fíla það er að prufa tyggjó það er ágætt en núna er ég með ræmu af plástrinum og það er bara gott ég sum sé tók hann í sundur
PS ÞÆTTI GOTT AÐ FÁ KVITT EF ÞIÐ RAMBIÐ HÉR INN
»
12.02.2009 10:52:37 / holtið
Nú er maður bara að sinna fac-inu og hætt hér
þakka fyrir mig....... kveð að sinni
frú SIGRÍÐUR
»
12.01.2009 15:04:50 / holtið
Komiði blessuð og sæl
Hér í Holtinu góða er gott að frétta......
Bjössi minn er árinu eldri átti afmæli 8 janúar og við vorum með veislu á laugardagskvöld þar sem Davíð og Benný komu norður og Benný átti afmæli 11 janúar svo þetta var bara dúndur veisla hjá okkur með danskri puru og alles með bara gott.......
Svo á Árni Bjöss afmæli 19 janúar 50 ára karlinn......
Það hefur verið mikið að gera hjá okkur í glerinu þó svo við fáum ekki gler þá erum við að gera ný mót og erum að skoða hvernig þau virka en það gengur bara vel
Á fimmtudag koma þær stöllur á púnktinum að heimsækja mig hlakka svo til að fá þær og á föstudag kemur hjónaklúbburin til okkar svo það er bara gamann frammundan hjá okkur
Áslaug ertu ekki í fríi á miðvikudag og fimmtudag er það ekki rétt hjá mér ég stefni á kaffispjall við þig
bestu kveðjur til ykkar sigga
»
24.12.2008 09:14:18 / holtið
Við óskum ykkur gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
Okkar bestu kveðjur
Sigga og Bjössi
Björn Már og Gabríel Ómar
»
16.12.2008 11:43:47 / holtið
OPNUNARTÍMI Í DESEMBER
Gallerý sigga-búð
Miðvikudagur 17 des kl 15-17
Fimmtudagur 18 des kl 15-17
Föstudagur 19 des kl 15-17
Laugardagur 20 des kl 15-17
Mánudagur 22 des kl 15-17
Þorláksmessa 23 des kl 15-20
Utan opnunartíma má hafa samband í síma 8660556
STJARNAN glermunir
GALLERÝ SIGGA-BÚÐ
www.stjarnan.net
»
11.12.2008 09:53:20 / holtið
OG ALLIR ERU AÐ JÓLAGERA
Já það er svo gaman að stússa fyrir jólin
Það er allt á svíng hjá okkur i Holtinu góða,,,, Við erum að undirbúa Jarðaför Hilmars gamla en hann kvaddi á fimmtudag fyrir viku og það verður húskveðja á Dalbæ á föstudag og jarðað á laugardag,svo það er líka að koma slatti af fólki norður.
Svo það er mikið að gera hjá okkur núna svo verður Kósý kvöld í kvökd hjá okkur í Gallerý sigga-búð stelpurnar Kolla og Hildur með nýjustofuna Ílit og Lína við ætlum að sameinast um Opið kvöld í götunni endilega komið til okkar.....
Jæja kveð að sinni sigga
»
30.11.2008 08:58:18 / holtið
1.SUNNUGAGUR Í AÐVENNTU
Það stittit óðum í jólin,, og erum við ekki sammála um að þetta er einn yndislegasti tíminn á árinu...
Á föstudag fórum viðí laufabrauðið svo eru jólagjafirnar að verða tilbúnar en jólakortin eru svona háfnuð hjá okkur og í gær skreittum við Holtið okkar svo það er orðið ansi jólalegt, það á bara eftir að dubba upp jólatréinu en það gerum við 16 des.
En við verðum með svona litli jól þegar Davíð og Benný koma norður og Guðfinna mamma Bennýjar er að hugsa um að koma með þeim æi ég vona að þau hafi tækifæri á að koma ,Davíð minn verður fyrir austann um jólin.
En ég er að klára námskeiðin á púnktinum það er að byrja 9. og síðasta námskeiðið á mánudag það verður búið á mánudag eftir viku og svo klára ég einn hóp 15.des þá er ég búin.
En þann dag 15. des fer hann Bobbi minn í aðgerð það á að taka úr honum hálskirtlana það verður voða gott fyrir hann að lostna við þá þeir eru honum bara til ama......

jæja nú kveð ég sæl og glöð í mínu JÓLA húsi
Bið fyrir kveðju til ykkar Sigga
»
28.11.2008 13:32:32 / holtið
JÓLA

JÓLA


Hallllllóóó nú er mín að þrífa og ganga frá þvotti.......................

Mín er að fara í laufabrauð í kvöld með henni Diddu minni
Svo erum við Bjössi minn að fara að skreita og skreita meir

Og ég er að hlusta á jólalög

Mín sendir ykkur knús og meira knús
kveð JÓLA sigga
»
25.11.2008 22:38:09 / holtið
Komiði blessuð
Það er ekki mikið að frétta hjá okkur bara mikið að gera....................
Við höfum verið mikið hjá Hilmari gamla á Dalbæ hann lærbrottnaði á miðvikudag fyrir viku og hefur verið frekar slappur.
Við eru svo bara að detta í jólagírinn fara að skreita og svona dúll.
já já það er ekki mikið að frétta nema mikið að gera en þá er um að gera að skipuleggja sig vel.
þið mættið vera duglegri að kvitta hjá mér
sendi ykkur ljós í hjarta ykkar og bið fyrir góðar kveðjur til ykkar
ég kveð ykkur að sinni Sigga
»
18.11.2008 13:48:34 / holtið
það er komin 18 nóv
Og hann Mummi minn á afmæli í dag 28 ára kallinn.
Já vinur það eru 4ár og 8mánuðir frá því að þú fórst frá okkur á annan stað.
Og mér þykir voða langt síðan ég sá þig tala nú ekki heyrt í þér
En oft hugsa ég um hvað ég var heppinn að hafa haft þig í mínu lífi þú hefur kennt okkur svo mikið, Já og strákarnir mínir voru svo heppnir að hafa þig og litu mjög mikið upp til þín, en eg verð nú að viðurkenna að ég var nú ekki alltaf sátt við það, ég man þegar ég var að skamma þig ef eitthað kom uppá sagði ég ætíð,, mundu hvað strákarnir líta upp til þín viltu að þeir geri þetta, þá svaraðir þú að bragði ÉG VEIT ÞAÐ NÚ EKKI.
Á þessum 23. árum sem við höfðum með þér eigum við svo mikið af minningum og við erum svo þakklát fyrir þær ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera með ykkur Agnesi þegar Mikael fæddist það er ógleymanleg stund og ég held bara dýrmætasta stundin sem við áttum saman.
Jæja vinur ég er búin að kveikja jólajlósin í gluggunum hjá okkur í Brautarholti það geri ég þer til heiðurs og svo kveiki ég á kertinu þínu í kvöld.
Elsku vinur ég vona að þér líði vel þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við eigum saman.
Minnig þín lifir í hjörtum okkar
sigga frænka
»
Síður:
1 2 3 ...
10